text stringlengths 0 993k |
|---|
Hér er ein frá Gústa Óskars . En þetta eu bátar Einars ríka Sigurðssonar , frá vinstri talið Freyja VE 260 , Týr VE 315 , Frigg VE 316 , Nanna VE 300 og Óðinn VE 317 . Á þessum tíma hefur Einar sótt mikið í goða fræðina varðandi nöfn á báta sína . Einig átti Einar á þessum tíma bátana Njörð , Þór , Frey og Braga . Hér ... |
Dagurinn í dag er dagurinn þinn . Þú getur gert við hann hvað sem þú vilt . Gærdagurinn áttir þú . Honum getur þú ekki breytt . Um morgundaginn veist þú ekki neitt . En daginn í dag átt þú . Gefðu honum allt sem þú megnar , svo einhver finni í kvöld að það er gott að þú ert til . |
Í dag kom Aðalsteinn Jónsson SU til hafnar í Reykjavík . Aðalsteinn Jónsson SU á leið til hafnar í Reykjavík . Flutningaskipið Selfoss kom til Reykjavíkur . Rósin sigldi með ferðamenn í hvalaskoðun . Bergur VE 44 gerir sig kláran til að fara á veiðar . Strandveiðibáturinn Þröstur á siglingu innan hafnar í Reykjavík . H... |
Hér á síðunni má finna ýmsar upplýsingar um Björgunarhesta , myndir , skýrslur og tengla . Einnig erum við með lokaða Facebook síðu , Björgunarhestar , fyrir meðlimi Björgunarhesta og aðra áhugasama . Æfing var haldin þann 24. nóvember að Hæl í Flókadal þar sem Landinn heiðraði okkur með nærveru sinni , þátturinn var s... |
867 . Það var fyrir nokkrum dögum síðan að manni nokkrum varð laus höndin í byggingarvöruversluninni Bauhaus . Ekki þó með þeim hætti að hann veittist að neinu öðru fólki sem þarna var statt , heldur réðist hann að brunaboða þeirrar gerðar sem er svo algeng á slíkum stöðum , þ.e. rofa sem er inni í litlum kassa með gle... |
Það kom loksins að því að okkar fyrsti sauðburður færi af stað . Ég átti von á fyrstu lömbum síðastliðna helgi og á mánudag 13. maí gerðist það loksins . Fyrst til að bera var kollótt gimbur undan Lagði og kind sem var þrílembingur . Hún hélt í sæðingu við Streng . Burðurinn var erfiður sökum stærðar lambsins og ég var... |
Ég set inn ýmsar myndir sem ég á í tölvunni minni , frá ferðalögum , fjölskyldumyndir og djammmyndir . Velkomin í heimasíðuna mína og njótið hennar . Ég nota þessa síðu til að blogga um það sem liggur mér á hjarta . Mér þætti vænt um að þið kommentið við bloggið mitt svo ég fái einhver viðbrögð og jafnvel einhverjar vi... |
Eiður ÓF 13 hefur alldeilis fengið andlitsliftingu frá þvi að báturinn Hét Kristjan EA núverandi eigandi Hermann Daðasson tók bátinn gjörsamlega i nefið og er hann nú með glæsilegustu bátunum i Bótinni sem að er aðstaðn sem að trillukarlarnir hafa fyrir sig fleiri færslur koma þaðan næstu daga Gylfi Guðmarsson , Árni B... |
Það er með mikilli gleði sem ég get sett þessa frétt inn á heimasíðuna okkar en fyrsti hluti framkvæmda við nýtt afhafnasvæði fyrir Nökkva hófst í dag . Á háfjöru í dag fór fyrsta grafan inn á grynningarnar á Leirunni og hóf að moka upp sandi í nýja uppfyllingu . Við munum lofa Nökkvamönnum vítt og breytt að fylgjast n... |
Bóklegt bifhjólanámskeið verður haldið fimmtudaginn 2. maí og mánudaginn 6. maí , 2013 . Námskeiðið verður haldið í Klettagörðum 11 , húsnæði Nýja ökuskólans og hefst kl. 17:30 báða dagana . Nauðsynlegt er að hafa samband við Sigurð til að skrá sig á námskeiðið en fjöldi þátttakenda er takmarkaður á hverju námskeiði . ... |
270 mos Gisting - Íbúðargisting í notalegri og snyrtilegri íbúð í Mosfellsbæ . Íbúðin getur tekið fjóra í gistingu , tvo í svefnherbergi og tvo í svefnsófa í stofu . Íbúðin er með vel útbúið eldhús , rúmgott baðherbergi með sturtu , borðstofu og setustofu með sjónvarpi , DVD og útvarpi með geislaspilara . Rúmfatnaður ,... |
04 : 4004.09 2012 Annað Hörður Snævar Jónsson | hoddi@433.is | Twitter : @hoddi23 Eiður Smári á leið til Bandaríkjanna Eiður Smári Guðjohnsen , markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins frá upphafi , er á leið til Bandaríkjana þar sem hann mun skoða aðstæður hjá Seattle Sounders FC í MLS deildinni . Þetta staðfesti ha... |
Átján börn voru fermd í fermingarguðþjónustu í Húsavíkurkirkju á Hvítasunnudag . ] ] |
Um borð voru 32 farþegar og þriggja manna áhöfn . Farþegarnir voru ferjaðir í land á slöngubátunum Jóni Kjartanssyni frá björgunarsveitinni Garðari og Ömmu Siggu frá hvalskoðunarfyrirtækinu Gentle Giants . Engan þeirra sakaði . Í viðtali við fréttastofu RÚV sagði Hörður Sigurbjarnarson stjórnarformaður Norðursiglingar ... |
fyrir 32 farþega hvalaskoðunarbátsins Hauks sem strandaði við Lundey á Skjálfanda í morgun . Fimm manns frá Rauða krossinum á Húsavík tóku á móti farþegunum með teppi eftir að þeir höfðu verið fluttir í land með slöngubátum og kvennadeild Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Húsavík bauð þeim upp á kaffi og kökur . Lækn... |
í Kína til sölu á Íslandi . Óskað verður eftir upplýsingum um kjör og aðbúnað fólksins í Kína sem framleiðir lopapeysurnar fyrir markaðinn á Íslandi . Fram að þessu hafa Kínverjar ekki verið þekktir fyrir góð launakjör eða aðbúnað verkafólks , sé tekið mið af því sem gerist á Íslandi og víðast hvar í Evrópu . Framsýn t... |
Brimnesi RE sem staddur er við veiðar í Smugunni . Í gærmorgun þegar Brimnesið var að koma í Smuguna sáu skipverjar Hvítabjörn á ísnum en Bjarki segir svo frá í skeytinu sem hann sendi : Við sigldum framá ísbjörn rétt áður en við renndum inn í Smuguna í gærmorgunn . Bangsi gekk lengi þvert fyrir skipið svo við máttum b... |
framtíðinni s.s við móttöku á slysstað eða öðrum vettvangi ” . Sagði Guðbergur Rafn Ægisson formaður Björgunarsveitarinnar Garðars sem æfði með þyrlusveit Landhelgisgæslunnar í gær . Þyrlan kom hér síðdegis á fimmtudag og um kvöldið var haldið námskeið í móttöku þyrlu og umgengni við hana . Að því loknu var þyrlunni fl... |
Mismunandi efni eru í flíkunum eftir því til hverra nota þær eru hugsaðar . Þú getur lesið nánari upplýsingar um hvert efni fyrir sig með að smella á tenglana hér til vinstri . Grunnlag er það lag fatnaðar sem liggur næst líkamanum . Efnin sem notuð eru í grunnlag eiga það öll sameiginlegt að draga raka frá líkamanum o... |
Starfsmannafatnaður merktur fyrirtækinu er öflug leið til markaðssetningar og ímyndarsköpunar . Slíkur fatnaður sameinar innri - og ytri markaðssetningu auk þess sem hann tengir saman vörumerkið , veitta þjónustu og gæði . Jafnframt eykur merktur starfsmannafatnaður samhug starfsmanna og hollustu þeirra við fyrirtækið ... |
Sem gestur á vefsíðu 66° Norður getur þú verið viss um öryggi og trúnað varðandi notkun persónuupplýsinga . Um öflun og notkun upplýsinga á vef okkar hefur fyrirtækið eftirfarandi venjur : 66° Norður virðir friðhelgi persónuupplýsinga um viðskiptavini sína . Tilgangurinn með þessari yfirlýsingu öryggi og trúnað er að k... |
66° NORÐUR rekur eigin viðgerða - og breytingaþjónustu og annast beina þjónustu við viðskiptavini sína . Viðgerðaþjónustan byggir á margra ára reynslu en í upphafi var viðgerðaþjónustan eingöngu fyrir sjófatnað en samhliða breytingum á framleiðslu fyrirtækisins breyttis viðgerðaþjónustan í alhliða þjónustu fyrir vinnuf... |
Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands . Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi . Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó - og vinnufatn... |
66° NORÐUR er afar stolt af því langa og góða samstarfi sem fyrirtækið hefur átt við björgunarsveitir landsins . Tæplega 18 þúsund sjálfboðaliðar starfa undir merkjum Landsbjargar um allt land . Um 3.500 manna útkallshópur er tilbúinn að bregðast við þegar neyðarkallið berst . Sjálfboðaliðar sveitanna hafa klæðst fatna... |
66° NORÐUR og Íslenskir fjallaleiðsögumenn sameina krafta sína á ný og bjóða upp á hina vinsælu æfingaáætlun „ Toppaðu með 66° NORÐUR og Íslenskum fjallaleiðsögumönnum " . Þetta er fimmta árið sem verkefnið er haldið en það veitir fólki tækifæri til að ganga á Hvannadalshnúk , hæsta tind Íslands ( 2110 m ) , sem er á s... |
Sjóklæðagerð Íslands hf. var stofnuð árið 1926 á Suðureyri við Súgandafjörð . Fyrirtækið dregur nafn sitt af Norðurheimskautsbaugnum sem er á 66 breiddargráðu Norður og liggur sunnan við Súgandafjörð . Stofnendur voru Hans Kristjánsson frá Súgandafirði ásamt nokkrum öðrum aðilum . Fyrirtækið starfaði í upphafi í bakhús... |
66° Norður notar einungis bestu fáanlegu efnin í vörur sem fyrirtækið framleiðir . Hvort heldur sem um er að ræða ytra byrði fatnaðarins eða einangrunina . Dúnvörurnar hafa verið vinsælar í gegnum árin en nýlega var 66° Norður fyrst íslenskra framleiðenda til þess að nota PrimaLoft ® fyllingu í hlífðarfatnað . PrimaLof... |
Smelltu á myndirnar til að sjá mismunandi vörumyndir Mögulegir litir , smelltu til að sjá vöru í þessum lit Smelltu hér fyrir neðan til að sjá stærðar kortin okkar Kjölur Fyrir daga bílsins var Kjölur eða Kjalvegur fjölfarnasta leið milli Norður - og Suðurlands . Kjölur nefnist hæsta svæðið ( spildan ) milli Langjökuls... |
Smelltu á myndirnar til að sjá mismunandi vörumyndir Mögulegir litir , smelltu til að sjá vöru í þessum lit Smelltu hér fyrir neðan til að sjá stærðar kortin okkar Botnsá rennur úr öðru dýpsta vatni landsins , Hvalvatni ( 160 m ) , í Hvalfjörð . Í stórfenglegt gljúfur Botnsár fellur hæsti foss landsins , Glymur , um 19... |
Smelltu á myndirnar til að sjá mismunandi vörumyndir Mögulegir litir , smelltu til að sjá vöru í þessum lit Smelltu hér fyrir neðan til að sjá stærðar kortin okkar Askja er virkt eldfjall í Ódáðahrauni og má rekja myndun hennar til tíðra eldgosa . Undir Öskju er kvikuþró sem tæmst hefur við eldgos svo botninn hefur sig... |
Hér er listi yfir þau fyritæki sem 66° Norður á í mjög nánu samstarfi við og má með sanni kalla vini 66° Norður . Fyrirtækið Íslenskir Fjallaleiðsögumenn var stofnað árið 1994 og hefur markmiðið frá upphafi verið að fara ótroðnar slóðir með innlenda sem erlenda ferðamenn , opna augu fólks fyrir fjallaferðum , stuðla að... |
Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson var valinn Sunnlendingur ársins - og íþróttamaður ársins - á útvarpsstöðinni Suðurland FM . Hlustendur Suðurland FM kusu Jón Daða Sunnlending ársins og hann var einnig valinn sunnlenski íþróttamaður ársins . Heil og sæl gott fólk . |
Einnig er fyrir stafni vinna við texta sem vonast er til að bólgni út með leiðréttingum og aukinni vitneskju um eyfirska bátasmíði . Vonast er til að gott lífsmark verði sýnilegt á vefnum og er þar treyst á lesandann . Þeim mun meiri upplýsingar sem berast skrásetjara þeim mun meiri hreyfing verður á vefnum . Frá lesen... |
Þann 30. apríl s.l. útskrifaðist 7. bekkur ABC skólans , samtals 22 ABC liðar . Að þessu sinni var námskeiðið tvö kvöld í viku á 12 vikna tímabili . Samhliða fræðslu tóku þátttakendur til hendinni og skiluðu vinnuframlagi í þágu starfsins sem er afar gagnlegt fyrir ABC barnahjálp . Við óskum þeim innilega til hamingju ... |
Sé um að ræða óþekkt ökutæki , sem valdið hefur tjóni , getur einvörðungu skapast bótaréttur hjá ABÍ vegna líkamstjóns og / eða missis framfæranda , en ekki vegna munatjóns . Sé t.d. ekið á kyrrstæða , mannlausa bifreið og tjónvaldurinn lætur sig hverfa af vettvangi , eignast eigandi kyrrstæðu bifreiðarinnar , sem ekið... |
Internetsambönd eru afhent með þrennum hætti Wimax , ADSL og ódýrari þráðlaus búnaður Wi-Max : Wi-Max samböndin voru fyrst sett upp 2008 og byggja á tíðnisviðinu 3,5 Ghz sem er úthlutuð tíðni frá Póst og fjarskiptastofnun . Búnaðurinn er margfalt betri en Wi-Fi . Alþjóðafjarskiptasambandið ITU hefur flokkað WiMax sem h... |
Ábótinn hefur hýst lén síðan 1996 svo nokkur reynsla hefur safnast liðin ár . Til að nýta Internetið undir eigin lénsnafni þarf að fylla út og skila umsóknum um lén ( á ensku “ domain ” ) . ISNIC.is hefur með höndum úthlutun . is léna á Íslandi . Ábótinn hýsir og þjónustar lén í nafnaþjónum sínum og aðstoðar við útfyll... |
Hagstofa Íslands gefur út árlega hagtölur sem meðal annars eiga að sýna fram á hvaða þjóðfélagshópar eiga á hættu að lenda í fátækt . Einstæðir foreldrar eru oftast nefndir sem sá þjóðfélagshópur sem hættast er við fátækt og þá oftar en ekki einstæðar mæður . Hagstofa Íslands hefur hins vegar ekki , ... Lágtekjumörk ( ... |
Ábyrgspilun.is er í eigu og rekin af Íslandsspilum , Happdrætti Háskóla Íslands ( HHÍ ) , Íslenskri getspá og Íslenskum getraunum . Síðan var upphaflega sett á laggirnar árið 2002 og þá fjármögnuð af Íslandsspilum og HHÍ , en síðar í breyttri mynd haustið 2009 í samstarfi þriggja fyrrnefndra fyrirtækja . Íslandsspil st... |
Aðalökuskólinn hefur aðsetur í Menntaskólanum við Sund , Gnoðarvogi 43 . Aðalökuskólinn var stofnaður árið 1996 og er nú í eigu 32 sérmenntaðra ökukennara sem leggja áherslu á að skila góðum ökumönnum út í umferðina . ATH ! Nemendur þurfa að nýskrá / skrá sig á námskeið ( sjá fliba efst Nýskráning / skráning ) . Verð :... |
Vöru er einungis hægt að skila í vöruafgreiðslu Advania og ber kaupandi ábyrgð á að kreditreikningur og / eða móttökukvittun sé í samræmi við vöruskil . Vöru fæst aðeins skilað ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt : Varan er sannanlega gölluð . Allar handbækur , fylgihlutir , fylgigögn og umbúðir fylgi með í upprunale... |
Advania er tilnefnt í tveimur flokkum . Öll félög innan samstæðunnar stóðu sig betur á fyrri árshelmingi 2012 en áætlanir gerðu ráð fyrir , að undanskildu Advania í Noregi . Nú geta viðskiptavinir Hátækni nálgast fjölbreytt úrval Dell tölva í versluninni og mun Hátækni leggja áherslu á að bjóða vandaðar fartölvur sem h... |
Tilbúið launafyrirtæki með greiðslutegundum Upplýsingar um starfsmenn skráir þú í launþegaupplýsingarnar . Fyrst og fremst er um skráningu persónuupplýsinga , skattkort og launakjör að ræða . Þú velur stærð á launakerfinu í samræmi við fjölda launþega . Minnsta launakerfið er fyrir hámark 3 launþega og það stærsta fyri... |
S5 Ábendingar er notendavænt og heildstætt hugbúnaðarkerfi til þess að halda utan um og vinna úr ábendingum og kvörtunum . S5 Ábendingar er lausn sem styður allt ferlið frá því að ábending eða kvörtun er skráð þar til úrbótum vegna hennar er lokið á farsælan hátt . S5 Ábendingar nýtist fyrirtækjum sem vilja tryggja að ... |
Visita er einföld og ódýr lausn fyrir gestamóttöku í fyrirtækjum og stofnunum . Kerfið er fljótlegt í uppsetningu og hagkvæmt í rekstri . Með Visita er gert ráð fyrir að gestir geti skráð sig inn á tölvu sem er staðsett í afgreiðslu fyrirtækisins . Skráningar færast í gagnagrunn og starfsmenn afgreiðslu staðfesta komu ... |
Advania sérhæfir sig í að útfæra lausnir fyrir smátæki , spjaldtölvur og snjallsíma . Forritaður er hugbúnaður fyrir Android , iPhone og Windows Mobile . Þekking okkar spannar allt frá greiningu og hönnun til útfærslu og útgáfu . Unnið er í nánu samstarfi við útlitshönnuði Advania sem hafa langa reynslu af hönnun á not... |
Til þess að styrkja stöðu viðskiptavina hvað varðar birgðahald ætlar Advania að bjóða upp á ráðgjöf í vörustjórnun . Advania ætlar að bjóða viðskiptavinum sínum upp á reglulega ástandsskoðun á stöðu birgðamála , koma með tillögur til úrbóta og fylgja eftir úrbótatillögum . Sérfræðingur á sviði vörustjórnunar vinnur útt... |
Fullkomin gagnaleyndFyllsta öryggis er gætt og nýjasta tækni í öryggismálum með 128 bita dulkóðun ( Advanced Encryption Standard ) er notuð . Þetta tryggir að allar Logmein tengingar eru algerlega öruggar . Heimildir og stjórnun á yfirtökuViðskiptavinur þarf alltaf að samþykkja að starfsmaður Advania taki yfir tölvuna ... |
Hjá Advania starfar stór hópur sérfræðinga í tengslum við ráðgjöf og þjónustu á Microsoft Dynamics NAV . Um er að ræða reynslumikinn hóp með mikla þekkingu sem nýtist vel við ráðgjöf og þjónustu til kröfuharðra viðskiptavina okkar . Okkar viðfangsefni eru innleiðingar , ráðgjöf , verkefnastýring , þjónustuheimsóknir , ... |
Oracle launakerfið er fjölhæft launakerfi sem hentar vel stórum fyrirtækjum með marga starfsmenn og mismunandi samninga og launakjör . Kerfið hefur verið aðlagað íslenskum aðstæðum , til dæmis vegna samninga við stéttarfélög , notkunar á skattkortum og aðildar að lífeyrissjóðum . Kerfið hefur vefrænt notendaviðmót eins... |
Skeytamiðlun Advania er þjónusta fyrir rafræn viðskipti í atvinnulífinu . Þjónustan er miðlæg og gerir mögulega rafræna dreifingu pantana og reikninga milli aðila sem tengjast miðluninni . Flest fyrirtæki og stofnanir geta með einföldum hætti tekið upp pappírslaus viðskipti . Tilkostnaður við pappírslaus viðskipti er lít... |
Get ég notað Office 365 á léni fyrirtækisins ? Já þetta er hægt . Sjálfgefið er að Microsoft úthluti léni til nýrra viðskiptavina á forminu NAFNFYRIRTÆKIS.ONMICROSOFT.COM en þessu má breyta yfir í lén fyrirtækisins Advania veitir alla aðstoð við að stilla upp tölvupósti og Sharepoint Online síðum upp á léni fyrirtækisi... |
Náðu tökum á öflugu greiningartæki fyrir Excel PowerPivot er viðbót í Excel sem er öflugt greiningartæki sem ætlað að betrumbæta annmarka PivotTable . PowerPivot auðveldar aðgengi að gögnum og alla gagnavinnslu . Námskeiðið er fyrir vana notendur sem sinna mikilli og flókinni úrvinnslu upplýsinga og vilja ná meiru út ú... |
Farið er yfir birgðakerfi og uppsetningu á vörutegundum . Einnig er farið yfir innkaupakerfi , hvernig virkni pantanakerfis er og kostina við að nýta sér nýtt innkaupaferli í ÓPUSallt . Farið yfir tengingu við tollkerfi og verðútreikning , nýja virkni sem kemur í útgáfu 2012 . Þetta námskeið hentar vel fyrir þá sem vin... |
Verkstæðið sér um ábyrgðarviðgerðir , þjónustu , uppsetningar og aðrar viðgerðir á notendabúnaði eins og útstöðvum , prenturum , skjám og jaðartækjum . Starfsmenn verkstæðis hafa áralanga reynslu af viðgerðum og verkstæðið er vottað sem Dell Authorized Service Provider en Dell gerir mjög strangar kröfur til sinna samst... |
Föstudagsmessa um gagnlegar nýsköpunarlausnir ( #sprotar ) Hér eru glærur frá síðstu föstudagsmessu Advania á vorönn 2012 . Að þessu sinni breyttum við dálítið til , stigum til hliðar ( svona að mestu ) og eftirlétum nokkrum flottum sprotafyrirtækjum sviðsljósið . Þemað var „ gagnlegar UT-lausnir fyrir atvinnulífið “ .... |
Senda póstRagnheiður starfar sem ráðgjafi í mannauðskerfi Oracle og hefur sérhæft sig í fræðslumálum , starfsþróun , starfsmannasamtölum og frammistöðumati . Ragnheiður gengur á fjöll og dansar Bollywood í frístundum . Ragnheiður BjörgvinsdóttirRáðgjafi í Oracle mannauð og þróun Mannauðsstjórnun er ný grein sem hefur r... |
Sífellt eru gerðar meiri kröfur um upplýsingagjöf til stjórnenda fyrirtækja og annarra starfsmanna . Nánast daglega þarf að vera hægt að kalla fram greinargóðar skýrslur um fjárhagstöðu , birgðir og sölu . Með betri upplýsingakerfum og nútímatækni verður þetta auðveldara . Gott upplýsingakerfi sem hentar fyrirtækinu ge... |
Senda póstÞórdís er þjónustustjóri TOK og hefur unnið hjá Advania frá 2006 . Hún hefur áratuga reynslu í launa - og bókhaldsvinnslum . Þórdís hefur mikinn áhuga á íslensku máli og er fíkin í glæpasögur . Hún hefur gaman af handverki og heklaði fullt af jólabjöllum í vetur . Þórdís er einnig laghentur smiður og geymir e... |
Senda póstBaldur er söluráðgjafi viðskiptalausna hjá Advania . Aðalverkefni hans eru tengd viðskipta - og upplýsingakerfinu Navision auk þess sem að hann hefur einskæran áhuga á að auka öryggi í kortaviðskiptum . Baldur er mikill áhugamaður um tuðruspark þar sem EM á hug hans allan þessa dagana auk þess sem hann slær h... |
Senda póstÞorsteinn er fæddur og uppalinn Skagfirðingur . Bjó sex ár í New York þar sem hann stundaði nám í Columbia fyrstu fjögur . Hann hefur lokið frumkvöðlanámi KLAK og er einn af tveimur stofnendum Naglans ( nagli.is ) . Þorsteinn starfar í Oracle vörustýringu , sem er hluti af viðskiptalausnum Advania . Þorsteinn... |
Senda póstStefán Hrafn stýrir samskiptasviði Advania , sem ber meðal annars ábyrgð á almannatengslum og viðburðum fyrirtækisins . Stefán Hrafn er fimm barna faðir , eiginmaður frú Valgerðar Gunnarsdóttur , fanatískur fótboltastrákur og ákafur ástríðukokkur . Haustráðstefna Advania verður haldin föstudaginn 7. september... |
SharePoint er í notkun hjá fjölmörgum fyrirtækjum , stofnunum og félagasamtökum hér á landi . Á dögunum kom út ný útgáfa af þessum vinsæla hugbúnaði sem kallast einfaldlega SharePoint 2013 sem inniheldur mikið af nýjungum . Hér er farið yfir það allra helsta sem til nýjunga horfir . Auðveldara að setja eigið útlit á Sh... |
Á myndinni eru frá vinstri til hægri þeir Ívar Logi Sigurbergsson Advania , Gestur G. Gestsson Advania , Sveinn Víkingur Árnason ÁTVR , Grétar Mar Baldvinsson ÁTVR og Davíð Þór Kristjánsson Advania . Áhersla á hagkvæmni og öryggi ÁTVR hefur að undangengnu útboði samið við Advania um endurnýjun á kassakerfi í öllum Vínb... |
Norræn ofurtölva hjá Advania Thor Data Center Advania Thor Data Center er gagnaver í Hafnarfirði með framsækinni Tier 3 - högun Stofnanir sem hafa yfirumsjón með háhraðatölvum til vísindarannsókna í Danmörku , Noregi , Svíþjóð og Íslandi hafa í sameiningu fjárfest og gangsett nýstárlega háhraðatölvu á Íslandi , sem hýs... |
Alþjóðlegi upplýsingatæknirisinn SAP hefur valið Advania sem samstarfsaðila ársins í SAP BusinessObjects-viðskiptagreindarlausnum . Advania atti kappi við tæplega sjötíu fyrirtæki í þessum flokki , jafnt á Íslandi sem í Danmörku . „ Advania og forverar þess hafa allt frá árinu 2000 veitt viðskiptavinum sínum fyrsta flo... |
Frá vinstri til hægri eru Eyjólfur Magnús Kristinsson framkvæmdastjóri rekstrarlausna og Advania Thor Data Center , Gestur G. Gestsson forstjóri Advania og Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri Hafnarfjarðar . Advania hefur fengið vilyrði hjá Hafnarfjarðarbæ fyrir tvöföldun á núverandi lóð fyrirtækisins við Helluhraun þa... |
Sigurður Atli Jónsson forstjóri MP banka og Gestur G. Gestsson forstjóri Advania ( til hægri ) handsala samstarf fyrirtækjanna á sviði upplýsingatækni . MP banki hefur samið við Advania um viðamikla útvistun á sviði upplýsingatækni . Um er að ræða uppsetningu , hýsingu og rekstur Advania á miðlægum búnaði bankans og tæ... |
Á myndinni eru Ingi Björn Ágústsson , sölustjóri Advania , Gestur G. Gestsson , forstjóri Advania , Guðmundur Sigurðsson , framkvæmdastjóri Hátækni og Guðmundur Zebitz , vörustjóri hjá Hátækni Advania og Hátækni hafa gert með sér samkomulag um sölu á Dell fartölvum , en Advania er umboðsaðili Dell á Íslandi . Nú geta v... |
Velta samstæðu Advania nam 12,9 milljörðum króna á fyrri árshelmingi 2012 , sem jafngildir 5,3% vexti í tekjum frá sama tímabili í fyrra . Öll félög innan samstæðunnar stóðu sig betur á fyrri árshelmingi 2012 en áætlanir gerðu ráð fyrir , að undanskildu Advania í Noregi . Að teknu tilliti til einskiptiskostnaðar í Nore... |
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga ehf. , sem rekur samnefndan þjónustuvef fyrir heimilisfjármál almennings , hefur samið við Skýrr um heildarlausn í hýsingu og rekstri á vefumhverfi Meniga . " Við vorum að leita að traustum og öflugum samstarfsaðila , sem hefði burði til að veita okkur fyrsta flokks hýsingarþjónustu... |
Skýrr býður í samstarfi við Microsoft fría prufuáskrift að Office 365 . Prófaðu skrifstofuna í skýinu Skýrr býður í samstarfi við Microsoft fría prufuáskrift að Office 365 , sem gjarnan er nefnt „ skrifstofan í skýinu “ . Með Office 365 fær starfsfólk það sem þarf til að ná árangri í daglegum störfum . Í Office 365 er ... |
Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands ( fyrir miðju ) með Gesti G. Gestssyni forstjóra Advania og Davíð Hjaltested ráðgjafa Advania ( hægra megin ) . Ferðafélag Íslands hefur undirritað samning við Advania um innleiðingu á viðskiptalausninni ÓPUSallt . „ Ferðafélagið er meðal stærstu og öflugustu félaga... |
Skýrr er norrænt upplýsingatæknifyrirtæki með 1.100 starfsmenn í fjórum löndum ; Íslandi , Noregi , Svíþjóð og Lettlandi . Velta Skýrr-samstæðunnar var liðlega 17,5 milljarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2011 . Velta samstæðunnar á sama tímabili á árinu 2010 nam 15,9 millljörðum og er því tekjuvöxtur tæplega 10% ... |
Morgunverðarfundur um viðskiptagreind , föstudaginn 19. mars Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar um viðskiptagreind ( Business Intelligence ) núna á föstudaginn kemur , 19. mars . Á fundinum munu sérfræðingar í viðskiptagreind hjá Landsbanka Íslands og N1 segja reynslusögur um notkun fyrirtækjanna á ... |
Velta samstæðu Advania nam 12,9 milljörðum króna á fyrri árshelmingi 2012 , sem jafngildir 5,3% vexti í tekjum frá sama tímabili í fyrra . Öll félög innan samstæðunnar stóðu sig betur á fyrri árshelmingi 2012 en áætlanir gerðu ráð fyrir , að undanskildu Advania í Noregi . Nánar ... |
Aðaleigandi Advania í dag er Framtakssjóður Íslands , sem er í eigu sextán lífeyrissjóða og Landsbanka Íslands , en einnig eru liðlega 40 aðrir hluthafar í félaginu . Framtakssjóður Íslands er meðal annars kjölfestufjárfestir í Icelandair , Icelandic Group , Advania , Vodafone , N1 og Promens . |
Þann 20. janúar 2012 tók Advania í notkun nýtt merki fyrir fyrirtækið . Merki Advania sýnir reglu og vöxt lifandi fyrirtækis og litirnir undirstrika enn frekar kraftinn . Sjónræni leikurinn , hvernig kassarnir virðast ýmist vísa inn í eða út úr myndfletinum , sýnir fjölhæfni fyrirtækisins og hæfni starfsfólks Advania t... |
Advania á Íslandi sinnir upplýsingatækni frá A til Ö , með samþættum heildarlausnum fyrir atvinnulífið og neytendur þegar kemur að hugbúnaði , vélbúnaði , fjölbreyttri hýsingu og víðtækri rekstrarþjónustu . Allt á einum stað . Samhliða þessu á Advania eitt stærsta gagnaver landsins , Thor Data Center . Starfsfólk Advan... |
Advania leitar að metnaðarfullum vörustjóra fyrir notendalausnir félagsins . Ef þú hefur áhuga á að vinna hjá stærsta upplýsingafyrirtæki landsins með fagfólki í fremstu röð gæti þetta mögulega verið starf fyrir þig . Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og brennandi áhuga á tækni . Hann þarf að vera talnaglöggur ... |
Vörur og / eða þjónustu skal staðgreiða nema um annað hafi verið samið sérstaklega . Annar greiðslumáti en skv. meðfylgjandi greiðsluseðlum eða upplýsingum telst ófullnægjandi . Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast fjármálasviði Advania innan 30 daga frá útgáfudegi . Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga ... |
Unified gagnageymslur , stundum nefndar fjölþjónustugagnageymslur , sameina í einu tæki hefðbundnar gagnatengingar byggðar á ISCSI ( SAN ) ásamt skráarþjónustum eins og CIFS og NFS ( NAS ) . Eitt tæki sinnir þannig á sama tíma skráarþjónustum fyrir notendur og þjónustur ásamt því að sinna geymslu skráarkerfa fyrir stýr... |
En þegar andi sannleikans kemur mun hann leiða yður í allan sannleikann . Það sem hann segir yður hefur hann ekki frá sjálfum sér heldur mun hann segja yður það sem hann heyrir og kunngjöra yður það sem koma á . Jóhannesarguðspjall 16.13 Ég leiði blinda um braut sem þeir rata ekki , læt þá ganga vegi sem þeir þekkja ek... |
Aðventkirkjan gefur út kennsluefni um Biblíuna . Umræðuefnið spannar ársfjórðung í senn og fjallar ýmist um tiltekna bók Biblíunnar eða ákveðið viðfangsefni . Kennsluefnið miðar við það að á hverjum degi er lesið í Biblíunni og íhugað . Á samkomum eru svo málin rædd . Þar spinnast oft mjög líflegar umæður sem vekja til... |
Að gefnu tilefni viljum við benda á að prédikunarlistinn getur breyst án fyrirvara vegna margvíslegra ástæðna . Skrifstofan hefur ekki í öllum tilvikum tök á að leðrétta listann hér á vefnum einkum þegar breytingar eiga sér stað á síðustu stundu . Við þökkum fyrir skilninginn . Kirkja sjöunda dags aðventista á Íslandi ... |
Þann 1. október síðastliðin var hvíldardagurinn helgaður börnum í Loftsalnum . Öll dagskráin , sálmar og matur var tileinkað börnum . Það var mjög góð mæting bæði hjá börnum , unglingum og fullorðnum . Sérstaklega þótti okkur gaman hvað fólk brást vel við því að koma með mat sem börnum þótti góður . Allir fóru heim gla... |
Áðan þegar ég var á leið heim frá Selfossi datt Rás 1 út einhversstaðar á Hellisheiði . Þá fletti ég yfir á stöð með betri móttöku og þá heyrði ég rödd sem ég kannaðist svo vel við . Þetta var hún Hulda okkar Jensdóttir . Það rifjaðist upp fyrir mér að ég hafði heyrt nefnt að hún væri nýbyrjuð með þætti á útvarpi Sögu ... |
Þann 6. júní sl. hélt góðmennur hópur í vorferð austur fyrir fjall . Þar voru á ferð nokkrir félagar úr vinafélagi Aðventkirkjunnar . Að þessu sinni fórum við austur með ströndinni frá Strandakirkju og heimsóttum Rjómabúið á Baugsstöðum . Ferðalagið endaði með heimilislegu samsæti í safnaðarheimili Árnessafnaðar á Self... |
Aðventkirkjan var stofnuð í Bandaríkjunum um miðbik 19. aldar . Fljótlega breiddist hún út og nú hefur hún kirkjur , sjúkrahús og aðrar heilbigðisstofnanir , skóla , prentsmiðjur o.fl. í sex heimsálfum . Í dag eru um 65.000 Aðventkirkjur um allan heim , Aðventboðskapurinn er kenndur á rúmlega 900 tungumálum í ræðu og r... |
Við fengum virkilega góða þjónustu í sambandi við þetta allt saman og þetta var bara allt til fyrirmyndar . Vorum sérstaklega ánægð með grillið eftirá , það var mjög vel útilátið og girnilegt : ) Við munum pottþétt koma aftur og mæla með ykkur , þetta var fáránlega gaman . Takk kærlega fyrir okkur : ) Dear Freyja and Á... |
Bretum og Hollendingum hentar hvorki að vinna né tapa dómsmáli Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson – birtist 29. mars 2011 á bloggsíðu höfundar Ýmsum meðölum er beitt til að hvetja fólk til að samþykkja Icesave samningana í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 9. apríl næstkomandi . Þar eru ekki síst fyrirferðarmikil rökin um að... |
Í kvöld tekur ÆSKR við viðurkenningu fyrir fyrirmyndaverkefnið Youth against Bullying – A human rights campaign against discrimination and exclusion sem fram fór í Háteigskirkju síðasta sumar . Verkefnið var ungmennaskipti sem unnið var í samstarfi ÆSKR og Evangelische Kirchenmeinde Inden-Langerwehe í Þýskalandi . Verk... |
Sígaunajazz : Elios og Boulou Ferré á tónleikum í Reykjavík laugardaginn 2. apríl 2005 á Nasa kl. 17.00 Aðgangur ókeypis Alliance française býður á tónleika með Elios og Boulou Ferré , þekktum jazztónlistarmönnum á Nasa laugardaginn 2 apríl kl. 17.00 “ Sígaunatónlist ” nær engan veginn að lýsa tónlist Boulou og Elios F... |
Nýkominn í hús þessi flotti sanddreifari ( stærð 1.5 m 3 ) . Dreifarinn er allur rafdrifinn , enginn glussi og hentar mjög vel fyrir pick-up bíla , t.d. F350 . Dreifarinn er til sýnis á planinu okkar í Vesturhrauni 3 , Garðabæ . Tilboðsverð kr. 1.099.000 án vsk. ( Listaverð kr. 1.290.000 án vsk ) |
Í öðrum þættinum var það Páll Stéfánsson sem fjallaði um sína upplifun á Afríku . En erfitt að lýsa því fyrir fólki hvernig er að koma til margra svæða í Afríku - fólk verður bara að koma þangað til að upplifa stemninguna og fegurðina . Ef ég ætti að lýsta tilfinningunni í Timbúktú þá minnti það mig helst á það að vera... |
Það að hýsa skiptinema getur haft miklar breytingar í för með sér fyrir alla aðila , skiptinemann sjálfan og fjölskylduna sem hýsir hann . Allir aðilar læra nýja siði og tungumál . Skiptinemar á okkar vegum leggja sig iðulega fram við að læra tungumálið þótt árangurinn sé misjafn . Margir skiptinemar eru enn í sambandi... |
Í janúar sl. birtist skemmtilegt viðtal í Fréttatímanum við Jóhannes Bjarka Urbancic Tómasson sem var skiptinemi í Túnis og síðar á Ítalíu ( já á báðum stöðum sama skólaárið ! ) og fjölskyldu hans . Eins og sjá má á meðfylgjandi úrklippu er fjölskylda Jóhannesar Bjarka sannkölluð AFS fjölskylda . Systir Jóhannesar Bjar... |
Þarf ég að vera góður námsmaður til að eiga möguleika á að komast sem skiptinemi með AFS ? AFS á Íslandi gerir ekki kröfur um framúrskarandi námsárangur eða málakunnáttu . Einstök AFS lönd eru þó undir þrýstingi viðkomandi skólayfirvalda um að taka aðeins á móti nemum með námsárangur yfir meðallagi eða nema sem hafa gr... |
Þessar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um breytingar * Þátttökugjöld verða ákveðin í júlí . Þátttakendur AFS búa á meðan dvöl stendur hjá fósturfjölskyldum og ganga í hverfisskóla . AFS skiptinemar eru ekki gestir inn á heimilum fósturfjölskyldunnar heldur partur af fjölskyldunni . Fjölskyldurnar eru sjálfboðaliða... |
Subsets and Splits
No community queries yet
The top public SQL queries from the community will appear here once available.